Hlíðaskóli áfram í úrslit Skrekks 2026
Hlíðaskóli áfram í úrslit Skrekks 2026
Atriðið Heimsendir verður í úrslitum Skrekks mánudaginn 16. nóvember kl. 20:15 í beinni útsendingu á RÚV.
Atriði Hlíðaskóla fjallar um að tjá sig áður en það er of seint og það er í lagi að vera hræddur. Áhorfendur fylgja unglingunum Frikka og Veru sem þora ekki að tjá ást sína hvor til annars. Það brýst út uppvakningafaraldur í bekkjarpartíi sem leiðir til þess að loksins tjá Frikki og Vera ást sína á seinustu stundu… eða hvað?
Við erum svo stolt af krökkunum, Særós og Kristínu Bryndísi sem hafa leiðbeint krökkunum í gegnum ferlið síðustu vikur. Við hvetjum alla til að fylgjast með í beinni á mánudagskvöld.