Íslenskuverðlaun unga fólksins 2026
Íslenskuverðlaun unga fólksins 2026
Þær Aysou Mehraby í 4. bekk og Marta Semen í 9. bekk hlutu í kvöld Íslenskuverðlaun unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík. Verðlaunin eru veitt árlega í tilefni af Degi íslenskrar tungu og voru nú veitt í tuttugasta sinn. Markmið verðlaunanna er að auka áhuga æskufólks á íslenskri tungu og hvetja það til framfara í tjáningu talaðs máls og ritaðs.
Verndari verðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
Aysou Mehraby fékk verðlaun fyrir að sýna mikinn áhuga á að læra íslensku og miklar framfarir í færni við að tjá sig á íslensku í ræðu og riti. Hún hefur tekið miklum framförum í íslensku og sýnir mikla leikni í að nota tungumálið sem samskiptatæki.
Marta Semen hlaut verðlaun fyrir að sýna færni, frumleika og sköpunargleði við að tjá sig á íslensku í ræðu og riti. Hún hefur sýnt mikinn áhuga á læra íslensku og nota tungumálið sem samskiptatæki. Þá hefur hún tekið miklum framförum í íslensku.
Við óskum þeim innilega til hamingju með verðlaunin!