Kærleikur og kurteisi kostar ekki neitt
Dagur gegn einelti er haldinn árlega þann 8. nóvember til að minna okkur á sameiginlega ábyrgð okkar allra á að skapa öruggt, jákvætt og styðjandi umhverfi þar sem öll fá að njóta sín og tilheyra. Einelti hefur mikil áhrif á líðan og skaðar sjálfsmynd þegar við látum það viðgangast. Við getum komið í veg fyrir einelti með jákvæðum skólabrag, með því að taka eftir, bregðast við og koma fram við hvert annað af virðingu.
Í tilefni dagsins var hátíðleg athöfn í Hlíðaskóla á föstudag þar sem verðlaun voru veitt fyrir framúrskarandi starf á sviði forvarna gegn einelti og til að vekja athygli á góðum verkefnum sem stuðla að jákvæðum samskiptum og vellíðan. Verðlaunin komu að þessu sinni í hlut EKKO teymis Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi.
Dagskráin var fjölbreytt þar sem m.a. forseti Íslands og Frosti Þorvaldsson nemandi í 9. bekk fluttu ávörp. Nemendur í 7. bekk fluttu tvö lög úr söngleiknum „Aftur til fortíðar“ og nemendur í 9. bekk aðstoðuðu Gísellu Hannesdóttur við flutning á „Kærleikslaginu“.